Boltinn byrjar að rúlla í Landsbankadeildinni á morgun 11. maí 2007 15:40 MYND/Vilhelm
Íslandsmótið í knattspyrnu hefst á morgun. FH-ingar hefja titilvörn sína á Akranesi í beinni útsendingu á Sýn. Formaður KSÍ segir á næstu 4-5 árum verði bylting í íslenskri knattspyrnu. Flautað verður til leiks í Landsbankadeild karla á morgun klukkan 14 þegar ÍA og FH mætast á Akranesi. Það er eini leikur morgundagsins en hins vegar verða þrír leikir á sunnudaginn. Þá mætast Valur og Fram á Laugardalsvelli, Breiðablik og Fylkir á Kópavogsvelli og HK bregður sér yfir Fossvoginn og mætir Víkingum. Fyrstu umferðinni lýkur svo á mánudagskvöld þegar KR og Keflavík mætast í Vesturbænum. Brotið verður blað í sögu Sýnar um helgina þegar þrír leikir úr fyrstu umferð verða sýndir í beinni. Opnunarleikur ÍA og FH verður að sjálfsögðu í öndvegi en þá hefst útsending klukkan 13.45. Á sunnudag verður svo leikur Vals og Fram í beinni klukkan 15.45 og á mánudagskvöld verður sýnt beint frá leik KR og Keflavíkur klukkan 19.45. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, var gestur í sérstökum þætti um Landsbankadeildina á Sýn í gærkvöldi. KSÍ hefur undanfarin ár stefnt að því að áhorfendur í Landsbankadeild karla fari yfir 100 þúsund manna múrinn. Spurður hvað þyrfti til að ná því sagði Geir að knattspyrnan þyrfti að vera skemmtileg og mótið spennandi, en það hefði vantað upp á spennuna í efri hluta deildarinnar undanfarin ár. Geir vonast til að liðin komi vel undirbúin til leiks og að mótið verði jafnt og skemmtilegt. Aðspurður um aðstöðu til knattspyrnuiðkunar sagði Geir hana hafa farið batnandi síðustu ár. Mikil uppbygging hefði t.d. átt sér stað í Laugardal, Kópavogi og á Valsvellinum og þá væri fyrirhuguð uppbygging í Hafnarfirði. Sagði hann að bylting yrði á íslenskum leikvöllum á næstu fjórum til fimm árum af þeim sökum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Körfubolti Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Golf Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn Fleiri fréttir Diljá með fimm mörk á tveimur vikum Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna FIFA og Sádar í eina sæng „Stríðshetjur“ Íran lagðar af stað á HM FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Heskey yngri tryggði City titil gegn United Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni „Ég tek fulla ábyrgð“ „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Elías bikarmeistari í Danmörku Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Glódís bikarmeistari annað árið í röð Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Benóný stýrði fögnuðinum Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Sjáðu Foden stela senunni í sigri City „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ „Þú þarft raunverulega að þjást“ „Mann fyrir mann eigum við að vinna þá“ Benóný Breki fer á Wembley ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Sjá meira