Fótbolti

Dunga stýrir Ólympíuliði Brasilíumanna

NordicPhotos/GettyImages

Landsliðsþjálfarinn Dunga var í dag formlega ráðinn þjálfari Ólympíuliðs Brasilíumanna fyrir leikana í Peking á næsta ári.

Brasilíumenn hafa þegar tryggt sér sæti á leiknum á næsta ári en þeir taka keppninni með meiri alvöru en Evrópuþjóðirnar. Vandrelei Luxemburgo, fyrrum landsliðsþjálfari Brasilíu, var einnig fenginn til að stýra Ólympíuliði Brassa árið 2000 en þá féll liðið úr keppni í fjórðungsúrslitum og það kostaði Luxemburgo starfið.

Brasilíumenn náðu ekki að tryggja sér þáttöku á síðustu leikum sem fram fóru í Aþenu, en það voru grannar þeirra Argentínumenn sem höfðu sigur á því móti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×