Erlent

Blóðugt rifrildi um hæð Browns

Sjötugur maður skaut vin sinn eftir rifrildi um hæð söngvarans nýlátna, James Brown, seinasta mánudag.

Samkvæmt lögreglu voru félagarnir heima hjá öðrum vini þegar rifrildi um það hversu hár James Brown hafi verið fór gjörsamlega úr böndunum. Það endaði með því að Dan Gulley Jr. skaut vin sinn David James Brooks Jr. tvisvar í kviðinn.

Brooks fór þá út í bíl sinn, náði í byssu og skaut á Gulley en hitti ekki. Hann var síðan fluttur á spítala en engar upplýsingar hafa verið gefnar um líðan hans.

James Brown lést síðastliðinn jóladag, 73 ára að aldri. Hann var 168 sentimetrar á hæð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×