Skógrækt ríkisins kærir framkvæmdir í Heiðmörk 22. febrúar 2007 17:13 MYND/Daníel
Skógrækt ríkisins hefur kært framkvæmdir í Heiðmörk á vegum Kópavogsbæjar vegna fyrirhugaðrar lagningar á vatnslögn. Fram kemur á heimasíðu Skógræktarinnar að forsendur kærunnar séu þær að umræddar framkvæmdir séu brot á 6. og 7 gr. skógræktarlaga þar sem m.a. segi að ekkert svæði megi rjóðurfella nema með samþykki skógræktarstjóra, og þá því aðeins að sá sem heggur skuldbindi sig til þess að græða upp skóg að nýju á öðru jafn stóru svæði og bannað er að stinga upp og flytja brott tré og hvers konar ungviði á leyfis skógrlktarstjóra eða skógarvarða. Samþykki skógræktarstjóra liggur ekki fyrir í þessu tilviki. Þar segir enn fremur að í nútímastjórnsýslu sé eðlilegt að samráð sé haft við Skógrækt ríkisins á skipulagsstigi fyrir framkvæmdir sem hafa í för með sér skógareyðingu, að mótvægisaðgerðir í formi áætlunar um að græða upp skóg að nýju á öðru jafn stóru svæði séu hluti af viðkomandi skipulagsáætlun og að samþykki skógræktarstjóra sé fengið strax og þær áætlanir liggja fyrir. Hvorki Kópavogsbær né Reykjavíkurborg hafi haft fyrir því að leita samþykkis skógræktarstjóra á skipulagsstigi vatnsveitulagnarinnar í Heiðmörk. Skógrækt ríkisins segir ljóst að á komandi árum muni æ fleiri mál af þessu tagi koma upp þegar byggð á höfuðborgarsvæðinu og víðar stækkar inn í skógræktarsvæði í nágrenni sínu. Mikilvægt sé að þessi skógræktarsvæði nýtist íbúum nýju hverfanna sem skjólgjafar, til fegrunar lands og til útivistar en séu ekki rudd burt af því það hentar betur stórvirkum vinnuvélum.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira