Harma fordóma í garð vátryggingastarfsemi 23. febrúar 2007 13:28 MYND/Vilhelm
Samtök fjármálafyrirtækja harma fordóma í garð vátryggingastarfsemi á Íslandi sem koma fram í umsögn Læknafélags Íslands til efnahags- og viðskiptanefndar um breytingar á lögum um vátryggingarsamninga. Í yfirlýsingu frá samtökunum flokka þeir orð Læknafélagsins sem aðdróttanir en Læknafélagið segir að verði breytingarnar samþykktar að óbreyttu sé verið að ganga erinda tryggingarfélaganna. Samtök fjármálafyrirtækja benda í þessu sambandi á að Persónuvernd og Fjármálaeftirlitið leggi mismunandi skilning í heimild vátryggingafélaga til að afla upplýsinga um núverandi og fyrrverandi heilsufar foreldra eða systkina umsækjanda um persónutryggingu. Persónuvernd hafi lýst yfir efasemdum sínum við ofangreinda heimild en Fjármálaeftirlitið, sem lögum samkvæmt beri að sjá til þess að vátryggingafélög fari að lögum í störfum sínum, hafi verið þeirrar skoðunar að sú heimild hefði næga lagastoð enda byggi ákvæðið á samhljóða ákvæði í danskri löggjöf. Upplýsingarnar séu mikilvægar til að ákvarða iðgjöld við töku persónutrygginga en þau grundvallist ævinlega á þeirri áhættu sem félagið ber. Vegna efasemda Persónuverndar hafi stjórnvöldum þótt ástæða til að taka af öll tvímæli og í því skyni hafi viðskiptaráðherra lagt fram frumvarp á Alþingi fyrr í vetur til breytinga á ofangreindum lögum. Að áliti sHarma amtakanna hafi frumvarpið ekki falið í sér neina verulega efnisbreytingu á lagaákvæðum þrátt fyrir breytt orðalag og því hafi ekki þótt ástæða til að gera athugasemdir við það.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira