Myndatökur og gestabækur bannaðar 23. febrúar 2007 14:48 Jón Gerald Sullenberger með lögmanni sínum Brynjar Níelssyni. MYND/Gunnar
Myndatökur og gestabækur voru bannaðar um borð í Viking bátunum samkvæmt framburði Jóns Geralds Sullenberger í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ýmsir nafngreindir menn úr viðskiptalífinu komu í bátana og keyptu Baugsmenn meðal annars golfsett fyrir einn þeirra. Yfirheyrslur héldu áfram í morgun en þar var spurt um 18. ákærulið endurákærunnar, sem snýr að meintum fjárdrætti Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar frá Baugi í þeim tilgangi að fjármagna eignarhlutdeild í skemmtibátnum Thee Viking. Jón Gerald heldur því fram að báturinn hafi verið sameiginleg eign hans og þeirra Jóns Ásgeirs og Jóhannesar Jónssonar. Hann hafi fengið greiðslur frá Baugi á þessum tíma sem hafi verið upp í bátinn. Bæði Tryggvi og Jón Ásgeir hafa hins vegar haldið því fram að greiðslurnar hafi verið í tengslum við Vöruhúsið sem Jón Gerald átti en fjárfestingafélagið Gaumur, sem er að hluta til í eigu Jóns Ásgeirs, hafi lánað honum fyrir bátnum Á tíunda áratugnum voru keyptir þrír bátar. Fyrst var Viking I keyptur. Næst Viking II og síðan þriðji báturinn Thee Viking. Sá bátur var miklu stærri en hinir og mun þægilegri að sögn Jóns Geralds. Bátarnir voru við höfn í Miami í Flórída í Bandaríkjunum Jón Gerald sagði mikil leynd hafi verið yfir eignarhaldi þeirra Bónusfeðga í bátunum. Þeir hafi ekki viljað berast á þar sem þeir áttu og ráku lágvöruverslun. Gestum hafi átt að vera ljóst að þeir áttu bátinn en þangað buðu þeir ýmsum mönnum úr viðskiptalífinu eins og Kaupþingsmönnunum Sigurði Einarssyni og Hreiðari Má Sigurðssyni og Ara Edwald. Fleiri nafngreindir menn hafa áður verið nefndir í þessu samhengi svo sem Bjarni Ármannsson sem er forstjóri Glitnis. Í ferð hans vestur um haf keypti Tryggvi meðal annars tvö golfsett út á kort Baugs, annað fyrir Bjarna og hitt fyrir sig. Fyrir dómi sagði Tryggvi að hann hefði síðar endurgreitt sitt sett til Baugs. Í bátunum mátti ekki taka myndir og ekki mátti hafa gestabók um borð. Allt var þetta gert að sögn Jóns Geralds til að tryggja það að ekki fréttist af ferðunum þangað. Ekki eru því til myndir af partýum sem haldin voru í bátunum. Tónlistina hefur að minnsta kosti ekki vantað þar sem Tryggvi hefur sagt við yfirheyrslur að hluti af því sem hann er ákærður fyrir í nítjánda lið ákærunnar sé tilkomið vegna kaupa á geisladiskum í bátana. Verjendur Baugsmanna vilja að 18. ákæruliður verði dreginn til baka. Í bókun sem þeir lögðu fram í dag kemur fram að framburður Jóns Geralds stangist á við orðalag ákærunnar þess efnis að Jón Gerald hafi aldrei minnst á að Gaumur ætti að eignast bátinn. Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari, segir ákæruna ekki bara byggða á framburði Jóns Geralds.
Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Innlent Fleiri fréttir Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Sjá meira