Sveitarfélögin fá ekkert af fjármagnstekjum og einkahlutafélögum 16. febrúar 2007 18:45
Fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga ætla að koma fram með hugmyndir um tekjutilfærslu frá ríki til sveitarfélaga fyrir lok næsta mánaðar.(2) Í dag fá sveitarfélögin engar tekjur af einkahlutafélögum og einstaklingum sem eingöngu hafa fjármagnstekjur. Í dag var haldinn samráðsfundur fulltrúa í Sambandi íslenskra sveitarfélaga með fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra. Þar var m.a. rætt um færslu verkefna um málefni aldraðra og málefni fatlaðra til sveitarfélaganna og ákveðið að setja vinnuhópa í þau mál. Hins vegar ákvað fundurinn að ganga hraðar til verks varðandi skiptingu tekna ríkis og sveitarfélaga. En sveitarfélögin fá engar skatttekjur af vaxandi fjölda einstaklinga sem eingöngu hafa fjármagnstekjur og ekki heldur af miklum fjölda einkahlutafélaga. "Við teljum okkur hafa sýnt fram á að sveitarfélögin þurfa á því að halda," segir Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í rauninni hafi útgjöld sveitarfélaga vaxið meira en útgjöld ríkisins á undanförnum árum sem ekki sé undarlegt því nærþjónustan sé að færast æ meir til sveitarfélaganna. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fer fram hinn 23 mars næst komandi. "Og það var samþykkt á þessum samráðsfundi að formaður sambandsins, fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra skipi í raun starfshóp sem á að vinna hratt og setji sér það markmið að vera með einhverja áfanga í því máli, tekjuskiptingarmálinu, fyrir landsþingið," segir Halldór. Hann segir að á sínum tíma hafi verið talað um að færa þyrfti um þrjá milljarða af tekjum ríkissjóðs yfir til sveitarfélaganna. Hann sagði sveitarstjórnarmenn bíða eftir tillögum í þessum efnum og því mikilvægt að einhverjar tillögur kæmu fyrir landsþingið í lok næsta mánaðar.
Mest lesið Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Algjörlega óásættanleg staða Innlent Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Erlent „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Erlent Hættu við lendingu í miðju aðflugi Innlent Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Innlent Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Innlent Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Innlent Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Erlent Fleiri fréttir Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Sjá meira