Innlent

Skýjaborgir veita engum atvinnu

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra.
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra. MYND/Gunnar

Eitt mikilvægasta verkefni íslenskra stjórnamálamanna á næstu árum er að finna leiðir til að sætta náttúruverndar- og nýtingarsjónarmið. Þetta sagði Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra á aðalfundi Félags íslenskra stórkaupmanna í dag.

Valgerður sagði slíkt hins vegar ekki mega vera á forsendum höfuðborgarsvæðisins. Íbúar á landsbyggðinni eigi þá virðingu skilið að þeir sem andmæli virkjanaframkvæmdum leggi fram raunhæfar tillögur um hvernig laða megi að fjármagn. Framkvæmdir við byggingu skýjaborga stuðli hvorki að hagvexti né veiti atvinnu.

Ráðherrann vék í lokin máli sínu að ímynd Íslands og áhrifum hvalveiða á hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×