Vill banna klámráðstefnu 16. febrúar 2007 18:30
Talskona Stígamóta telur fullvíst að íslensk stjórnvöld muni banna fyrirhugaða ráðstefnu dreifingaraðila á klámi sem fram á að fara í Reykjavík í byrjun mars. Stígamótakonur segja að tenglar á heimasíðu ráðstefnunnar vísi á efni þar sem ýtt er undir mansal og barnaklám. Ráðstefnan kallast Snow Gathering, eða snjósamkoma, og mun þetta vera í annað skipti sem ráðstefna sem þessi er haldin, en hún var í Austurríki í fyrra, samkvæmt þeim upplýsingum sem lesa má út úr heimasíðunni. Stígamótakonur segja segja vissulega erfitt að banna fólki að koma saman til fundar, en þarna sé um að ræða alþjóðlega kaupstefnu dreifingaraðila á klámi. "Og það þarf ekki annað en kíkja á 210 gr. hegningarlaganna til að sjá að það er kolólöglegt. Svo við höfum ekki meiri áhyggjur af málinu," segir Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta. Stígamótakonur séu búnar að láta ríkisstjórn, alþingismenn, borgarstjórn og lögreglu vita af þessu og okkur detti ekki í hug annað en laganna verðir sjái til þess að lögum sé framfylgt á Íslandi. Guðrún segir að hérna sé í raun um viðskiptaráðstefnu að ræða. "Myndum við leyfa dópsölum að koma saman á Íslandi, eða öðrum handhöfum ólöglegra afla? Ég held ekki," segir Guðrún. Á heimasíðu ráðstefnunnar má sjá að um 150 aðilar eru búnir að skrá sig á hana og hægt er að fara á heimasíður þeirra til að kynna sér fyrir hvað þeir standa. Þar eru t.a.m. tveir aðilar með eftirnafnið Hjörleifson, hvort sem það er þeirra rétta nafn eða tekið upp með hliðsjón af staðsetningu ráðstefnunnar. Guðrún minnir á að íslensk stjórnvöld séu skuldbundin af norrænum, evrópskum og alþjóðlegum samningum til að vinna gegn vændi, klámi og mansali. Mansalið þrýfist í vændinu. "Og á mörgum þessum síðum er einmitt söluvaran sú að um sé að ræða ungar stúlkur sem séu nýkomnar til landsins og viti ekki hvað bíður þeirra og þær séu mállausar. Ég meina, þarf að segja meira," spyr Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta.
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Fleiri fréttir Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sjá meira