Fótbolti

Hafa fulla trú á Morten Olsen

NordicPhotos/GettyImages

Þjálfarar í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eru á einu máli um að Morten Olsen eigi að sitja áfram sem þjálfari danska landsliðsins þó það tryggi sér ekki sæti á EM í knattspyrnu.

Í frétt frá TV2 í Danmörku er vitnað í nokkra þjálfara í dönsku úrvalsdeildinni og þeir segja að landsliðið hafi átt erfitt uppdráttar á sumum sviðum síðustu tvö árin, en það sé ekki Olsen að kenna. Hann sé maður sem haldi sig fast við sitt og sé trúr sinni speki með landsliðið - annar þjálfari hefði eflaust ekki náð betri árangri með liðið.

Danska liðið lýkur keppni í undankeppni EM þegar það tekur á móti Íslenska landsliðinu á miðvikudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×