Leik lokið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Blikarkonur voru að spila vel í Kaplakrika í dag.
Blikarkonur voru að spila vel í Kaplakrika í dag. Vísir/Diego

Blikakonur stigu stórt skref í átt að því að verja Íslandsmeistaratitilinn með 3-0 útisigri á FH í toppslag Bestu deildar kvenna í fótbolta í Kaplakrika í kvöld. Blikar eru nú komnar með þriggja stiga forskot á toppnum.

Breiðabliksliðið tók öll völd snemma í leiknum og skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum, fyrst skoraði Edith Kristín Kristjánsdóttir strax á 9. mínútu og svo bætti Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir við öðru marki þremur mínútum fyrir hálfleik.

FH-konur bitu meira frá sér í seinni hálfleiknum en tókst ekki að skora og setja meiri spennu í leikinn. Þetta er fyrsti leikurinn í Bestu deildinni sem FH nær ekki að skora. Í stað þess gulltryggði Sunna Rún Sigurðardóttir sigurinn.

FH-konur voru líka búnar að vinna fimm af síðustu sex deildarleikjum, skora í þeim 28 mörk og voru taplausar í deildinni í þrjá og hálfan mánuð en urðu þarna að sætta sig við fyrsta tapið sitt í Bestu deildinni síðan 30. apríl.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira