Tungan og Jónas heiðruð víða um land 15. nóvember 2007 13:30
Mikið verður um dýrðir á morgun þegar degi íslenskrar tungu verður fagnað og þess minnst að 200 ár eru frá fæðingu Jónasar Hallgrímssonar þjóðskálds. Háskóli Íslands, Rithöfundasamband Íslands og afmælisnefnd Jónasar Hallgrímssonar efna til blysfarar frá aðalbyggingu Háskólans í Hljómskálagarð að styttunni af þjóðskáldinu. Hún var afhjúpuð 16. nóvember 1907, á aldarafmæli skáldsins. Þar verður flutt ávarp. Þá verður hátíðarsamkoma í Þjóðleikhúsinu frá 19:30 til 20:30 undir heitinu Þar sem háir hólar. Þar verða verk Jónasar flutt í bundnu máli og lausu og tónlist tengd kvæðum hans og minning hans heiðruð með ýmsum hætti. Enn fremur verða verðlaun Jónasar Hallgrímssonar veitt á hátíðinni en hana hljóta þeir sem þykja hafa unnið að framgangi íslenskrar tungu. Hátíðarsamkoman er öllum opin og ókeypis aðgangur á meðan húsrúm leyfir. Þá verður á morgun opnuð sýningin Ferðalok í Þjóðmenningarhúsinu en hún er helguð manninum, skáldinu og náttúrufræðingnum Jónasi Hallgrímssyni. Háskóli Íslands stendur auk þess fyrir viðamikilli hátíðardagskrá í tilefni dagsins, frá klukkan 16 til 18.30. Hátíðin fer fram í stofu 201 í Árnagarði við Suðurgötu og þar mun menntamálaráðherra meðal annars flytja ávarp og kennarar við íslenskuskor kynna nýja lausn í íslenskukennslu fyrir útlendinga. Enn fremur verður dagskrá í Kennaraháskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og í Skálholti í tilefni dagsins. Stóra upplestrarkeppnin hefst sömuleiðis formlega í grunnskólunum á morgun og verður dagurinn haldinn hátíðlegur í flestum skólum landsins. Þess má til að mynda geta að nemendur 10. bekkjar Hvolsskóla á Hvolsvelli lesa Brennu-Njáls sögu í samstarfi við Sögusetrið á Hvolsvelli. Lesturinn hefst kl. 7.30 að morgni og lesa nemendur úr sögunni til skiptis fram á kvöld. Áætlað er að lestrinum ljúki um kl. 22. Dagskrá á degi íslenskrar tungu má nálgast hér.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Fleiri fréttir Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið segir kostnaðinn átta til þrettán milljarða Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Sjá meira