Fótbolti

Englendingar eiga ekki skilið að komast á EM

NordicPhotos/GettyImages

Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Rússa, segir enska landsliðið ekki eiga skilið að komast í lokakeppni EM í knattspyrnu næsta sumar.

Enska liðið á litla sem enga möguleika á að komast á mótið ef menn Hiddink ná að landa sigri gegn Ísraelum á laugardaginn. Hann segir ómögulegt annað en að hans menn nái í öll stigin.

"Ég er rólegur og afslappaður og hef fulla einbeitingu. Þessi leikur er á við úrslitaleik á HM og við erum búnir að ganga í gegn um svo mikið í þessum riðli að það er ekki mögulegt að við töpum í Ísrael. Ef við skoðum riðilinn og liðin í honum, er ekki hægt ða segja að Englendingar eigi skilið að fara áfram. Rússneska liðið hefur verið mjög stöðugt en það sem ræður úrslitum er það hvaða lið ná tveimur efstu sætunum. Ef við endum fyrir ofan Englendinga getur enginn sagt að við eigum það ekki skilið," sagði Hiddink.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×