Endurskoða löggjöf ef dómur í tálbeitumáli verður staðfestur 14. nóvember 2007 15:11 MYND/GVA
Ef Hæstiréttur kemst að því að ekki sé heimild til að refsa fyrir það að tæla börn í kynferðislegum tilgangi á Netinu eins og í svokölluðu tálbeitumáli Kompáss þarf að endurskoða löggjöfina. Þetta sagði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.Það var Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, sem gerði dóm héraðsdóms í Kompásmálinu að sínu umtalsefni. Þar voru þrír menn sýknaðir af ákæru um kynferðisbrot fyrir að hafa ætlað að fara á fund unglingsstúlku með það í huga að eiga við hana kynferðislegt samneyti. Benti Ágúst Ólafur á dómurinn hefði komist að því að netsamskipti við þáttagerðarmenn Kompáss gætu ekki verið sönnun um brot.Benti hann á að þarna væri ekki um fullframið en samkvæmt hegningarlögum væri tilraun til brots einnig refsiverð. Vísaði hann þar til tilraunaákvæðis laganna. Spurði hann dómsmálaráðherra hvort hann hygðist beita sér fyrir skýrari refsiheimildum um nettælingu gagnvart börnum í kynferðislegum tilgangi.Björn Bjarnason dómsmálaráðherra vísaði til greinar sem hann ritaði í Morgunblaðið í sumar. Þar hefði hann sagt að kæmi í ljós að refsiheimildir í málum sem þessum væru ekki fyrir hendi þyrfti að bregðast við því og endurskoða lögin. Fram hefur komið að málinu hafi verið áfrýjað til Hæstaréttar og sagði Björn rétt að bíða þess dóms áður en ákvörðun um endurskoðun yrði tekin.Þá sagði Björn að þessi mál hefðu verið rædd á fundi dómsmálaráðherra norrænu ríkjanna í sumar og það yrði einnig gert á fundi þeirra í desember.
Mest lesið Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Erlent „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Innlent Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Bindur vonir við Vor til vinstri Innlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent Fleiri fréttir Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Sjá meira