Innlent

Ætla að efla forvarnir og heilsu í framhaldsskólum

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, undirrituð í dag þriggja ára samning við Lýðheilsustöð og samtök framhaldsskólanema um að stórauka forvarnir í framhaldsskólum og efla heilsu framhaldsskólanema.

Fram kemur í tilkynningu vegna samkomulagsins að markmið samningsins sé meðal annars að stuðla að bættri almennri líðan og heilsu nemenda, efla forvarnir gegn vímuefnum í framhaldsskólum og hvetja nemendur til að taka ábyrgð á eigin heilsu og stuðla að heilbrigðum lífsháttum.

Menntamálaráðuneytið leggur til starfsmann í þrjú ár til að vinna að verkefninu en hlutverk hans verður að efla starf forvarnarfulltrúa og náms- og starfsráðgjafa í framhaldsskólum. Þá mun heilbrigðisráðuneytið leggj áherslu á að efla tengsl milli heilsugæslu og allra framhaldsskóla. Lýðheilsustöð mun leggja til tvo starfsmenn sem halda námskeið fyrir nemendur, forvarnarfulltrúa í framhaldsskólum og aðra sem að heilsueflingu og forvörnum koma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×