Yfirstjórn öldrunarmála til félagsmálaráðuneytisins Björn Gíslason skrifar 13. nóvember 2007 16:00 MYND/Pjetur
Yfirstjórn öldrunarmála færist frá heilbrigðis- og tryggingmálaráðuneytinu yfir til félagsmálaráðuneytisins samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Formaður Landssambands eldri borgara segir sambandið lengi hafa barist fyrir þessum breytingum. Fram kemur í athugasemdum með frumvarpinu að markmiðið með þessari breyttu verkaskiptingu sé að gera fyrirkomulag heilbrigðis- og tryggingakerfisins auðskiljanlegra og aðgengilegra almenningi. Þannig mun Tryggingastofnun færast undir félagsmálaráðuneytið og sjá um lífeyristryggingar en sjúkra- og slysatryggingar verða áfram á forræði heilbrigðisráðuneytisins. Þá verður sett á fót sérstök stofnun sem heyrir undir heilbrigðisráðherra og mun meðal annars annast kaup, greiðslur og samninga um heilbrigðisþjónustu. Stefnt er að því að hún verði komin í fullan rekstur í síðasta lagi 1. september 2008. Þetta þýðir með öðrum orðum að skilið verður á milli heilbrigðisþjónustu sem öldruðum verður veitt og búsetuúrræða og almennrar öldrunarþjónustu sem verður flutt til félags- og tryggingamálaráðuneytis. Þetta ferli er sagt nokkuð flókið og tímafrekt. Meðal annars þarf að skipta daggjöldum í tvennt þar sem annars vegar verða daggjöld vegna heilbrigðisþjónustu sem heilbrigðisráðuneyti ákveður og hins vegar daggjöld vegna búsetu- og almennrar öldrunarþjónustu sem félags- og tryggingamálaráðuneytið ákveður. Stefnt er að því að þessari vinnu verði lokið fyrir 1. september á næsta ári. Yfirstjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra færist auk þess til félags- og tryggingamálaráðuneytis og er gert ráð fyrir að hvort ráðuneyti skipi einn fulltrúa í samstarfsnefnd um málefni aldraðra og að félags- og tryggingamálaráðherra skipi formann. Fé úr Framkvæmdasjóði aldraðra verður sem fyrr varið til uppbyggingar öldrunarþjónustu. Hafa barist fyrir tilfærslu á verkefnum Helgi Hjálmsson, formaður Landssambands eldri borgara, segir að sambandið hafi lengi barist fyrir því að yfirstjórn öldrungarmála og málefni Framkvæmdasjóðs verði flutt til félagsmálaráðuneytisins. Sömuleiðis að mestöll starfsemi Tryggingastofnunar yrði færð undir sama ráðuneyti. „Við höfum einnig barist fyrir því að samþætting heimahjúkrunar og þjónustu við aldraða verði í höndum eins aðila," segir Helgi og bendir á að nú sinni bæði ríki og sveitarfélög þessum málum. Þetta sé þó skref í rétta átt. Helgi segir að landssambandið hafi fundað með Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra um breytingarnar á málefnum aldraðra og að aldraðir bindi miklar vonir við hana enda hafi Jóhanna sýnt þessum málefnum mikinn áhuga. Þá segir Helgi einnig brýnt að gerðir verði þjónustusamningar við hjúkrunarheimili þar sem það komi skýrt fram hvaða þjónustu þau eigi að veita. Það sé nauðsynlegt svo að heimilin fái fjármagn í samræmi við þá þjónustu. Aðspurður segir Helgi að landssambandið berjist nú helst fyrir því að grunnlífeyrir verði hækkaður. „Hann er núna um 25 þúsund krónur en hann ætti að vera í kringum 80 þúsund," segir Helgi. Barist sé fyrir því að allir fái slíkan grunnlífeyri án þess að það hafi áhrif á aðrar lífeyrisgreiðslur til aldraðra.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Fleiri fréttir Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið segir kostnaðinn átta til þrettán milljarða Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Sjá meira