Innlent

Segjast ekki hafa stungið undan gögnum

MYND/Kjartan Pétur Sigurðsson

VSÓ Ráðgjöf segist ekki hafa stungið neinum gögnum undan við vinnu á skýrslu um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Bitruvirkjunar á Hellisheiði eins og Gísli Már Gíslason prófessor hefur haldið fram.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að skýrslan hafi verið unnin af heilindum og metnaði, rétt eins og önnur verk starfsmanna VSÓ. Þá segir í tilkynningu VSÓ að athugasemdum Gísla Más verði svarað á faglegan hátt á réttum vettvangi og munu athugasemdir hans og svör við þeim verða birt í endanlegri matsskýrslu sem allir hafa aðgang að.

Enn fremur bendir fyrirtækið að engar athugasemdir hafi komi fram í matsáælun um þá liði sem prófessorinn hafi tiltekið í gagnrýni sinni. Með málflutningi sínum vegi Gísli Már harkalega að heiðri starfsmanna VSÓ að ósekju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×