Fótbolti

HM 2014 haldið í Brasilíu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, heldur hér á styttunni góðu.
Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, heldur hér á styttunni góðu. Nordic Photos / Getty Images

Í dag var það formlega tilkynnt að heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2014 verður haldið í Brasilíu.

Þetta kemur þó ekki á óvart þar sem Brasilía var eina landið sem sótti um að halda keppnina. Búið var að ákveða að keppnin færi fram í Suður-Ameríku en ekkert annað land í álfunni sótti um.

Brasilía hefur fimm sinnum orðið heimsmeistari, oftast allra. Þetta er í fyrsta sinn sem keppnin er haldin í Suður-Ameríku síðan Argentína hélt og vann keppnina árið 1978.

„Knattspyrna er meira en íþrótt í Brasilíu, hún er ástríða þjóðarinnar,“ sagði Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×