Álasund ætlar að ræða við Breiðablik um Guðmann Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. október 2007 18:33 Guðmann er hér í leik við Fram og reynir að koma boltanum fram hjá Jónasi Grana Garðarssyni. Mynd/Eyþór
Reidar Vågner, yfirmaður knattspyrnumála hjá norska úrvalsdeildarliðinu Álasundi, sagði í samtali við Vísi að félagið ætlaði að ræða við Breiðablik um Guðmann Þórisson. Guðmann kom í dag heim frá Noregi eftir að hafa æft í átta daga með Álasundi. „Við höfum fylgst með Guðmanni í tvö ár,“ sagði Vågner. „Við vildum fá hann til okkar fyrir tímabilið en hann komst ekki þá. Því kom hann núna og æfði hjá okkur í viku en kynntist líka félaginu og borginni. Ég hef áður séð hann spila marga leiki en það er samt alltaf betra að sjá leikmanninn spila með okkar eigin leikmönnum.“ Vågner segir að nú á næstu dögum muni Álasund vera í sambandi við Breiðablik. „Við höfum ákveðið að taka málið á næsta stig og komast að því hvað við þurfum að gera til að fá hann til félagsins. Við erum þó líka að skoða nokkra aðra sambærilega leikmenn sem við höfum verið að fylgjast með en við höfum áhuga á að fá ungan miðvörð til félagsins.“ Hann segir að það hefði verið betra að sjá Guðmann taka þátt í æfingaleik með félaginu en að tækifæri hefði ekki gefist til þess á undanfarinni viku. „Eftir að tímabilinu lýkur munum við æfa áfram í þrjár vikur og á þeim tíma spilum við tvo æfingaleiki. Það kæmi vel til greina að fá Guðmann út til okkar til að taka þátt í öðrum leiknum.“ Sem fyrr segir hefur Vågner fylgst náið með Guðmanni undanfarin ár og segir hann spennandi leikmann. „Hann hefur nú sýnt okkur sína styrkleika og í hverju hann þarf að bæta sig. Okkur finnst hann afar spennandi kostur.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Aston Villa - Man. United | Rauðu djöflarnir heimsækja heitasta lið deildarinnar Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Sjá meira