Sigmundur semur við Þrótt til þriggja ára Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. október 2007 14:37 Sigmundur Kristjánsson í leik með KR í sumar. Mynd/Daníel
Sigmundur Kristjánsson hefur gengið til liðs við sitt æskufélag, Þrótt, eftir fjögurra ára veru í KR. Hann samdi við Þrótt til næstu þriggja ára en liðið tryggði sér sæti í efstu deild nú í haust. Hjá KR lék Sigmundur samtals 50 deildarleiki og skoraði í þeim fimm mörk. Hann náði aldrei að vinna stóran titil hjá félaginu en KR var nálægt því að falla um deild í sumar. „Mig langaði að fara aftur til míns gamla félags," sagði Sigmundur í samtali við Vísi. „Ég vil reyna að leggja mitt af mörkum svo að liðið hætti þessu flakki á milli deilda og festi sig í sessi sem efstudeildarfélag." Hann segir að hann eigi eftir að sakna KR mikið. „Það er mjög erfitt að fara frá KR en þetta er bara eitthvað sem mig langaði að gera. Gengið var slæmt í sumar sem hafði sín áhrif en mórallinn í KR var góður og hópurinn líka." Sigmundur segist ekki vera hræddur við að gera svo langan samning við Þróttara. „Alls ekki. Mér finnst að Þróttur eigi heima í efstu deild og svo líst mér líka vel á það sem hefur verið að gerast hjá félaginu. Gunnar Oddsson gerði frábæra hluti með liðið í fyrra og er stefnan nú sett á að gera enn betur."
Mest lesið Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti „Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“ Handbolti EM í dag: Flensuleikur Vals og stemningslausir Svíar Handbolti Fleiri fréttir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Sjá meira