Fótbolti

Beckham lék með Galaxy í nótt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Beckham á í harðri baráttu við Carlos Mendes, leikmann Red Bulls.
Beckham á í harðri baráttu við Carlos Mendes, leikmann Red Bulls. Nordic Photos / Getty Images

David Beckham er kominn á kreik á nýjan leik eftir að hafa jafnað sig á meiðslum sínum. Hann kom inn á sem varamaður hjá LA Galaxy í nótt.

Beckham kom inn á sem varamaður á 68. mínútu í leik LA Galaxy og New York Red Bulls sem lauk með 1-1 jafntefli. Þetta var sjöundi leikur Galaxy í röð án taps.

Galaxy hafði reyndar unnið síðustu sex leiki sína en staða liðsins er öllu betri í deildinni.

Lokaleikur tímabilsins verður á sunnudag gegn Chicago Fire og verður Galaxy að vinna til að eiga möguleika á sæti í úrslitakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×