Jónas hættir hjá KR Sporti Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. október 2007 14:07 Jónas Kristinsson, fráfarandi formaður KR Sports, ásamt Björgólfi Takefusa. Mynd/E. Ól.
Jónas Kristinsson mun ekki sækjast eftir endurkjöri í stjórn KR Sport hf. á næsta aðalfundi félagsins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá honum sem birtist á heimasíðu KR. „Ég, Jónas Kristinsson, hef ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri í stjórn KR Sport hf. á næsta aðalfundi félagsins. Ég hef verið í stjórn KR Sport frá 2001 og allan þann tíma hef ég verið formaður stjórnar. Áður gegndi ég ýmsum störfum fyrir KR, var í stjórn Knattspyrnudeildar félagsins í fjölmörg ár, var framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar árið 1997 og hef verið og er stjórnarformaður KR flugelda. Alls hef ég starfað í stjórnum fyrir KR í rétt tuttugu ár. Á þeim tíma sem ég hef helgað krafta mína störfum fyrir félagið hefur gengið á ýmsu. KR hefur unnið marga glæsta sigra, sem hafa kostað mikla vinnu allra sem að hafa komið. Í dag er félagsleg staða KR sterk. Það er bjart framundan og umgjörð félagsins er að taka á sig sterka og ákveðna mynd. Akademía KR hefur farið vel af stað og virðist ætla að standa undir öllum væntingum mínum og annarra sem að hafa komið. Þar æfir fjöldi ungra efnilegra leikmanna sem vonandi eiga eftir að setja svip sinn á KR á komandi árum. Búið er að ráða Rúnar Kristinsson, sem allir vita að er bróðir minn, sem yfirmann allra knattspyrnumála hjá KR. Rúnar er sem kunnugt er að koma heim eftir langan og farsælan ferill sem atvinnumaður í knattspyrnu og er mikils vænst af honum í framgangi knattspyrnurnar hjá KR. Það er vissa mín að hann muni bæta miklu við starfið hjá KR. Logi Ólafsson hefur verið ráðinn þjálfari næstu árin og ég geri ráð fyrir að reynsla hans gagnist okkur vel. Þegar ég lít til baka er margs að minnast. Eftir langa eyðimerkurgöngu unnust loks sigrar í meistaraflokki karla. Fyrst bikarmeistaratitlar árin 1994 og 1995. Sigurinn á Íslandsmótinu 1999 er stærsta stundin í lífi okkar KR-inga. Síðan unnust þrír aðrir sigrar á Íslandsmótinu, árin 2000, 2002 og 2003. Eftir tuttugu ára starf finnst mér rétt af mér að draga mig í hlé. Staða KR er sterk, það hefur orðið endurnýjun í stjórn KR sport, Akademían er virk, það er búið að taka stórar ákvarðanir fyrir meistaraflokk, uppbyggingu þjálfunnar og alla stjórn knattspyrnumála. Á þessum tímamótum finnst mér rétt að aðrir taki við því starfi sem ég hef sinnt og hefur fært mér margar ánægjustundir. Að lokum vil ég þakka þeim hundruðum eða þúsundum KRinga sem ég hef átt samstarf við. Þar ber ekki skugga á. Ég hef ekki starfað fyrir KR af eigin hag, heldur vegna þess að félagið hefur óskað eftir starfi mínu. Þetta er búinn að vera skemmtilegur og gefandi tími sem ég þakka fyrir. Áfram KR, Jónas Kristinsson Formaður KR Sport hf."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ólympíuhöll brennur í Ríó Sport Hitti óvart og fékk síðan flautukörfu í andlitið Körfubolti Hafþór ætlar að slá tvö heimsmet í sömu vikunni Sport „Ég vildi óska þess að ég hefði ekki verið svona mikið veik“ Handbolti Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Golf Tók málin í sínar eigin hendur: „Svía fíflið þitt“ Íslenski boltinn „Heppnir að tapa aðeins 2-0“ Fótbolti Strákarnir okkar mæta Messi fyrir HM Fótbolti Gylfi missir af upphafsleiknum Íslenski boltinn Sagt upp störfum hjá Aftureldingu Handbolti Fleiri fréttir Gylfi missir af upphafsleiknum Heimir Guðjóns mætir FH í bikarnum og KR fer í Garðabæinn Tók málin í sínar eigin hendur: „Svía fíflið þitt“ „Þetta gefur okkur ekkert forskot“ „Vona að þeir haldi í sín gildi og verði svolítið hugrakkir“ Víkingar bjóða börnum undir sextán ára frítt á Blikaleikinn Besta-spáin 2026: Óþreyja í Garðabænum Víkingar efstir en Þórsarar neðstir í spánni 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla „KR er ekkert að fara að slaka á og vera varfærnir“ Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur „Áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðablik“ „Dreymir að minnsta kosti um Evrópu“ Besta-spáin 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Keflvíkingur keppti í Squid Game KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll Sjá meira