Heimir Guðjóns: Eyjólfur er kominn á endastöð 17. október 2007 20:45 mynd/gva "
Það er bara almennt metnaðarleysi í gangi - alveg sama hvort það er hjá þjálfara eða hjá leikmönnum - menn virðast ekki hafa metnað til að gera góða hluti," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH þegar Vísir náði tali af honum eftir 3-0 tap Íslands í Liechtenstein í kvöld. "Það var mikið agaleysi inni á vellinum og menn virtust bara ekki vera tilbúnir í að rífa sig upp eftir þessi skelfilegu úrslit á móti Lettum. Það virðist eitthvað mikið vera að í þessu landsliði, þó ég sjái auðvitað bara það sem gerist inni á vellinum," sagði Heimir. "Maður hlýtur að spyrja sig þeirrar spurningar hvort Eyjólfur sé ekki kominn á endastöð með þetta landslið. Forsendan fyrir því að spila fótbolta hlýtur að vera sú að mönnum líði vel á boltanum en við náum ekki að stýra leikjum af því liðið er ekki nógu gott á boltanum." "Í leiknum í dag var t.d. allt of mikið um háar sendingar og leikmennirnir voru allt of óþolinmóðir strax frá byrjun í stað þess að sýna þessu verkefni smá þolinmæði og reyna að vinna sig hægt og bítandi inn í leikinn," sagði Heimir. Hann er ekki bjartsýnn á að Eyjólfur Sverrisson verði mikið lengur með liðið. "Eyjólfur klárar þessa keppni auðvitað en þegar keppninni lýkur hljóta menn að setjast niður og skoða hvert þetta landslið er að stefna, og á miðað við gengi liðsins í síðustu leikjum sýnist mér það bara vera niður á við. Þetta snýst allt um árangur og hann er bara ekki nógu góður." Heimir tekur í sama streng og aðrir sérfræðingar í kvöld þegar hann segist ekki muna eftir annari eins útreið og íslenska liðið fékk í kvöld. "Þetta var svartur dagur í íslenskri knattspyrnu eins og Guðmundur Benediktsson sagði réttilega í útsendingunni í kvöld. Ég er nú búinn að vera lengi í þessu en ég man ekki eftir annari eins útreið frá íslenska liðinu frá liði í þessum klassa."
Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Körfubolti „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Körfubolti Sagan með Val en KR á flugi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Eina þjóðin sem kom ekki á ársþing FIFA en með á HM Wood færði Forest nauma forystu gegn Villa Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Sagan með Val en KR á flugi Uppgjörið: Þróttur R. - FH 2-1 | Sætur sigur Þróttara Gætu endað í þyrlu til Eyja Eiður og Arnór spili ekki á laugardaginn Klúðraði þremur vítum og var síðan rændur sigurmarki Liðsfélagi Stefáns og Alfons kveikjan að risastóru dómsmáli Ronaldo lenti í hörkurifrildi í toppslagnum Mainoo áfram í Manchester næstu árin Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Írönum vísað úr landi fyrir ársþing FIFA Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sjá meira