Fótbolti

Markalaust hjá Brössum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ronaldinho lagar hárbandið sitt í leiknum í gær.
Ronaldinho lagar hárbandið sitt í leiknum í gær. Nordic Photos / AFP

Brasilía og Kólumbía hófu í gær leik í undankeppni HM 2010 er liðin gerðu markalaust jafntefli í Kólumbíu.

Leikurinn fór fram í 2600 metra hæð á blautum velli í þokkabót. Hann var ekki mikið fyrir augað. Brasilíumenn geta þó þakkað fyrir stigið sem þeir fengu því Kólumbíumenn voru betri aðilinn í leiknum.

Dunga, landsliðsþjálfari Brasilíu, var sáttur við úrslitin. „Miðað við aðstæður voru þetta ásættanleg úrslit. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn og við áttum nokkur tækifæri. En í þeim síðari skorti okkur hraða og styrk auk þess sem við vorum þreyttir.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×