Við verðum að vinna 11. október 2007 11:03 Morten Olsen NordicPhotos/GettyImages
Dana bíður nú mjög erfitt verkefni í F-riðli undankeppni EM á laugardaginn þegar þeir taka á móti Spánverjum í Árósum. Þjálfarinn Morten Olsen segir að ekkert annað en sigur dugi liðinu ef það ætli sér að eiga möguleika á að komast upp úr riðlinum. "Þetta er mjög einfalt. Við verðum að vinna," sagði Olsen. Danska liðið virtist dæmt úr leik í júní eftir að Svíum var dæmdur 3-0 sigur í dramatískum leik þeirra á Parken, en þar var leik hætt á 89. mínútu eftir að ráðist var á dómarann. Óhagstæð úrslit fyrir Spánverja og Norður-Íra hafa hinsvegar þýtt að Danirnir eiga enn möguleika í riðlinum. Þeir eru í fjórða sæti með 14 stig - fimm stigum á eftir Svíum og Spánverjum og tveimur á eftir Norður-Írum. Þeir eiga inni leiki gegn tveimur síðustu liðunum. Christian Poulsen frá Sevilla er nú kominn aftur inn í danska hópinn eftir þriggja leikja bann sem hann fékk fyrir að kýla Markus Rosenberg í leiknum örlagaríka í júní. "Ég er búinn að gjalda fyrir mistökin og nú langar mig að gera allt sem ég get til að hjálpa liðinu að ná í stig," sagði Poulsen í samtali við danska fjölmiðla. Vörn danska liðsins mun ekki veita af endurkomu Poulsen því miðvörðurinn Daniel Agger frá Liverpool er meiddur og í hans stað kemur Michael Gravgaard frá FC Kaupmannahöfn. Pressan á Spánverja er ekki síðri í leiknum, því þó spænska liðið hafi haft betur 2-1 í fyrri leik liðanna í Bernabeu í mars - hefur spænska liðið ekki þótt sérlega sannfærandi í 1-1 jafntefli við okkur Íslendinga og 2-0 sigri á Lettum. Markahrókurinn David Villa verður ekki með Spánverjum í Árósum en Luis Aragones þjálfari getur þó huggað sig við að hafa úr mjög breiðum hópi miðjumanna að ráða þó Xabi Alonso sé meiddur og í leikbanni. "Þetta verður gríðarlega erfiður leikur þar sem Danirnir eru erfiðir heim að sækja. Allt er í húfi fyrir bæði lið og við verðum að vera á tánum frá fyrstu mínútu ef við eigum að landa sigri þarna," sagði bakvörðurinn Joan Capdevila frá Villarreal.
Mest lesið „Gaman að skora og ég held að allir viti hvað Víkingur er fyrir mér“ Sport Kane afgreiddi Brassana Fótbolti „Ég hef aldrei séð aðrar eins tölur“ Fótbolti Paul Ince ákærður fyrir ölvunarakstur Fótbolti Uppgjörið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga Íslenski boltinn Eina konan í tækninefnd FIFA á HM: Ég er langsigursælust af þeim öllum Fótbolti Sextán manns í fullu starfi við að þjónusta Ronaldo Fótbolti Íslandsmeistarar krýndir á Íslandsmótinu í hestaíþróttum Sport Joao Pedro til Chelsea Fótbolti Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Handbolti Fleiri fréttir Tekur Martinez við hönskunum hjá United? Paul Ince ákærður fyrir ölvunarakstur Eina konan í tækninefnd FIFA á HM: Ég er langsigursælust af þeim öllum Kane afgreiddi Brassana „Ég hef aldrei séð aðrar eins tölur“ Joao Pedro til Chelsea Uppgjörið: Víkingur - Afturelding 2-1 | Víkingar sluppu með skrekkinn Uppgjörið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga Evrópumeistararnir rúlluðu yfir Messi og félaga Uppgjörið: Vestri - ÍA 0-2 | Sigur í fyrsta leik Lárusar Orra Uppgjörið: Fram - ÍBV 2-0 | Sanngjarn sigur heimamanna Sextán manns í fullu starfi við að þjónusta Ronaldo Hverju breytir Lárus Orri hjá Skagaliðinu? Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM „Mér finnst þetta vera brandari“ Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Stelpurnar okkar mættar í paradísina Chelsea áfram eftir tveggja klukkutíma töf og framlengingu Bonny til Inter Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Palmeiras fyrsta liðið í átta liða úrslit Pogba orðinn leikmaður AS Monaco Mikael mættur til að vinna titla með Djurgården: „Ég er sigurvegari sjálfur“ „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fyrsti sigur Fylkismanna í fimmtíu daga Stelpurnar unnu Svía Sjá meira