Fótbolti

Þjóðverjar vörðu titilinn

Þýsku stúlkurnar fagna marki Prinz
Þýsku stúlkurnar fagna marki Prinz AFP
Þýska kvennalandsliðið í knattspyrnu varð í dag fyrsta liðið í sögunni til að verja heimsmeistaratign sína með 2-0 sigri á Brasilíu í úrslitaleik í Kína. Fyrirliðinn Birgit Prinz kom þýska liðinu á bragðið og Simone Laudehr tryggði sigurinn. Martha hafði áður átt skot í þverslá og misnotað vítaspyrnu fyrir Brasilíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×