Brasilíumenn leita að eftirmanni Ronaldo 13. september 2007 16:23 Ronaldo var skæður á HM í fyrra og Brasilíumenn hafa enn ekki fundið eftirmann hans þegar kemur að markaskorun
Brasilíska landsliðið í knattspyrnu var ekki í vandræðum með að skora á æfingaferð sinni um Bandaríkin þar sem liðið skoraði sjö mörk í tveimur leikjum. Það er þó ljóst að eftirmaður Ronaldo er enn ekki fundinn. Ronaldo var ekki með liðinu vegna meiðsla að þessu sinni og þó vel megi vera að hinn 31 árs gamli markahrókur eigi eftir að snúa aftur með landsliðinu, gengur illa að finna hreinræktaðan markaskorara til að taka við af honum í landsliðinu. Aðeins eitt af þessum sjö mörkum sem Brassarnir skoruðu gegn Mexíkó og Bandaríkjamönnum í æfingaleikjunum komu frá framherja, en það var síðasta markið í leiknum gegn Mexíkó í gær og þar var á ferðinni framherjinn Alonso. Varnarmennirnir Lucio og Kleber skoruðu sitt hvort markið í æfingaferðinni líkt og þeir Kaka og Ronaldinho á miðjunni - eitt markið kom frá miðjumanniinum Elano úr víti og eitt markið var sjálfsmark. Framherjarnir Alfonso og Wagner Love eru þeir leikmenn sem hafa verið að fá tækifæri hjá Dunga landsliðsþjálfara undanfarið, en þeir hafa ekki verið sérlega iðnir við kolann. Alfonso var nánást óþekktur í Brasilíu þegar hann var kallaður í landsliðið í fyrsta sinn á þessu ári, en hann leikur með Heerenveen. Love leikur með liði í Rússlandi og er alveg búsettur þar. Hann skoraði aðeins eitt mark með liði Brasilíumanna í Suður-Ameríkukeppninni þrátt fyrir að hafa verið fastamaður í sókninni og til að mynda skoraði vængmaðurinn Robinho hvorki meira né minna en sex mörk í þeirri keppni. Framherjinn Fred hjá Lyon í Frakklandi er svo þriðji maðurinn sem hefur verið að fá tækifæri hjá Dunga, en hann er meiddur núna og gat því ekki tekið þátt í leikjum Brassa. Landsliðsþjálfarinn brá á það ráð tímabundið að tefla Kaka fram í fremstu víglínu, en saknaði brátt vinnusemi hans úr miðjuspilinu og hætti við þær áætlanir. Dunga tapar þó varla svefni yfir því þó framherjarnir skori fá mörk ef liðið heldur áfram að mala eins og það hefur gert undanfarið - og var nokkuð sáttur við gang mála í Ameríkutúrnum. "Þessir tveir leikir okkar voru frábærir á að horfa og hafa styrkt mig í trúnni á liðið. Liðið óx jafnt og þétt eftir því sem á leikina leið og sýndu góðar framfarir," sagði Dunga ánægður.
Fótbolti Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Handbolti „Góðu hliðarnar eru helvíti góðar“ Handbolti „Einn besti leikur sem maður hefur séð svakalega lengi“ Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti „Gætið ykkar á Óðni en ekki bara honum“ Handbolti Danir komnir í undanúrslit en Þjóðverjar þurfa stig gegn Frökkum Handbolti Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Fleiri fréttir Barry bjargaði stigi fyrir Everton Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Kristall snýr aftur „þroskaðri og fullorðnari“ Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Sjá meira