Fótbolti

Björgólfur spurður um Hafskip og Rússland

Andri Ólafsson skrifar
Björgólfur gaf Observer viðtal í gær
Björgólfur gaf Observer viðtal í gær mynd: visir.is
Blaðamaður breska vikublaðsins The Observer er staddur á landinu þessa stundina vegna ítarlegrar úttektar sem blaðið vinnur nú að um Björgólf Guðmundsson, aðaleiganda West Ham.



Blaðamaðurinn hitti Björgólf í gær og tók við hann 45 mínútna langt viðtal sem mun birtast að næstunni. Það mun verða fyrsta ítarleg viðtalið sem birtist við Björgólf á Bretlandseyjum.



Samkvæmt heimildum Vísis hyggst Observer grafa býsna djúpt í úttekt sinni á athafnamanninn geðþekka. Spurðist breski blaðamaðurinn, samkvæmt heimildum Vísis, meðal annars fyrir um fangelsisdóm sem Björgólfur fékk í Hafskipsmálinu á níunda áratug síðustu aldar og viðskipti hans í Rússlandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×