Óttast um heilsufar fólks vegna flóðanna í Bretlandi Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 25. júlí 2007 18:19
Óttast er um heilsufar fólks í Bretlandi vegna skólps og eiturefna sem blandast hafa flóðavatninu þar. Eignatjón vegna flóðanna undanfarnar vikur er talið nema tæplega fjögur hundruð milljörðum króna. Þá hafa tugir farist vegna flóða í Kína. Um þrjú hundruð og fimmtíu þúsund manns í Gloucester Tewkesbury eru án neysluvatns og treysta því á flöskuvatn eða vatn úr tankbílum sem sendir hafa verið til flóðasvæðanna. Gert er ráð fyrir að 140 þúsund heimili verði áfram án vatns næstu tvær vikur. Í dag tókst þó að koma rafmagni á tæplega fimmtíu þúsund heimili. Gordon Brown forsætisráðherra tilkynnti að fimm milljörðum íslenskra króna yrði varið til fórnarlamba flóðanna. Hann flaug til Gloucester í dag og lagði áherslu á að neysluvatni yrði komið sem fyrst á til íbúa svæðanna. Í Oxford hefur hundruð manna verið ráðlagt að fara af heimilum sínum sem standa lágt við ánna. Vatn hækkaði um rúman meter í borginni í dag, þó er ekki hætta á flóðum í miðborg borgarinnar, eða á háskólasvæðinu sjálfu. Gert er ráð fyrir að vatnavextir verði meiri í ánni á morgun og eru því tugir bæja í hættu. Rigningarsumarið í ár er gjörólíkt sumrinu í fyrra, sem var eitt hið heitasta og þurrasta í sögu Bretlands. Í Kína hafa úrhellisrigningar orðið í það minnsta 37 manns að bana í Sichuan héraði í síðustu viku. Eldingar og aurskriður hafa gert ástandið afar slæmt og enn er 14 saknað í héraðinu. Björgunarsveitir hafa fullt í fangi með að koma fólki til hjálpar og aurskriður og eldingar hafa aukið á slæmt ástand . Giftusamlega tókst þó að bjarga tveimur drengjum sem festust í miðri á sem óx skyndilega. Um 100 slökkviliðs-og lögreglumenn tóku þátt í að bjarga drengjunum, en vegna þess hve áin var straumhöfð misheppnuðust fyrstu tvær tilrauninrnar. Lögreglumanni tókst loks að koma drengjunum í land.
Mest lesið Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Innlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Veður Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Innlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Innlent Fleiri fréttir Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Sjá meira