Erlent

Brown lofar breytingum á Bretlandi

Sigríður Guðlaugsdóttir Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Tony Blair kynnir arftaka sinn til leiks í Manchester í dag.
Tony Blair kynnir arftaka sinn til leiks í Manchester í dag. MYND/AFP

Gordon Brown tók við embætti leiðtoga Verkamannaflokksins á fundi í Manchester í dag. Hann lofar breytingum í Bretlandi, bættu heilbrigðiskerfi og ætlar að berjast gegn fátækt. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra var á fundinum og sagði spennuna hafa verið gífurlega áður en tilkynnt var að Harriet Harmann dómsmálaráðherra yrði næsti varaformaður. Hún er önnur konan til að gegna því embætti.

Brown tiltók sérstaklega tvö áherslumál sem hann ætlar að setja á oddinn, menntamál og húsnæðismál. Fyrsta mál á dagskrá hjá nýjum leiðtoga verða þó umbætur í heilbrigðiskerfinu sem hann sagði algert forgangsmál.

Brown sagðist einnig ætla að berjast gegn fátækt á meðal barna og atvinnuleysi á Bretlandseyjum. Hann minntist einnig á utanríkismálin í ræðu sinni í Manchester og viðurkenndi að Íraksstríðið hefði klofið bæði  bresku þjóðina og verkamannaflokkinn. Þá lofaði að læra af þeim mistökum sem hefðu verið gerð í því máli.

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði að Brown hefði passað sig á að vanvirða ekki störf forvera síns og félaga í ræðunni. Þá hafi val varaformannsins Harriet Harmann hefði komið verulega á óvart. Keppinaut hennar, Alan Johnson, hafi verið spáð yfirburða sigri.

Brown verður sjálfkrafa forsætisráðherra þegar Tony Blair lætur af embættinu næstkomandi miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×