Erlent

Tala fallinna friðargæsluliða hækkar

Harðir bardagar hafa geisað í Nahr al-Bared flóttamannabúðunum.
Harðir bardagar hafa geisað í Nahr al-Bared flóttamannabúðunum. MYND/AFP

Nú er komið í ljós að fjórir spænskur friðargæsluliðar létu lífið þegar farartæki þeirra óku á jarðsprengju í suðurhluta Líbanons í dag. Sex eru slasaðir. Brynvarinn bíll þeirra brann til ösku og annar skemmdist mikið í sprengingunni. Sprengjan sprakk nálægt bænum Khiyam.

Þrettán þúsund friðargæsluliðar hafa verið á svæðinu síðustu misseri og er þetta í fyrsta skipti sem mannfall verður á meðal þeirra. Hezbollah samtökin í Líbanon hafa sent frá sér tilkynningu þar sem árásin er fordæmd, en ekkert er vitað um hverjir kunni að hafa staðið að baki árásinni.

Harðir bardagar hafa geisað í flóttamannabúðunum Nahr al-Bared fyrir utan borgina Trípólí í norðurhluta landsins í dag og létust tíu manns í bardögum líbanskra hermanna og íslamista.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×