Erlent

Búið að finna flak farþegaflugvélarinnar

Búið er að finna flak farþegaflugvélar sem hrapaði í skóglendi í Kamerún í gær. Ríkisútvarpsstöð í Kamerún greindi frá því fyrr í dag að vélin hefði fundist nærri bænum Mvengue.

Ekkert var þó gefið upp um hvort einhverjir farþeganna eitthundrað og fjórtán, sem voru um borð í flugvélinni, hafi lifað slysið af. Leitarsvæðið er skógi vaxið og mjög erfitt yfirferðar. Úrhellisrigning og þoka hafa einnig gert leitarmönnum erfitt fyrir. Flugvélin var á leið frá Douala í Kamerún til Nairobi höfuðborgar Kenýu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×