Erlent

Heiðursforseti Chelsea ferst í þyrluslysi

Lögregla og björgunarsveitir í Bretlandi rannsaka nú flak einkaþyrlu sem hrapaði í Cambridge-skíri í morgun. Um borð var Phillip Carter, heiðursforseti í stjórn breska knattspyrnuliðsins Chelsea. Hann var ásamt tveimur öðrum farþegum og þyrluflugmanni á leið frá Liverpool.

Carter var á leiðinni heim frá leik Chelsea og Liverpool í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi. Þyrlan hvarf skömmu eftir að hún hafði lagt af stað frá John Lennon flugvellinum í Liverpool í morgun. Flakið fannst síðan á ellefta tímanum og eru málið nú til rannsóknar. Telja fjölmiðlar allt benda til þess að allir fjórir um borð hafi farist í slysinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×