Fótbolti

Tap fyrir Spánverjum - Stórleikur Árna Gauts dugði ekki

Emil Hallfreðsson átti ágæta spretti í fyrri hálfleik í kvöld, en eins og sjá má á myndinni voru skilyrðin alls ekki góð vegna ausandi rigningar
Emil Hallfreðsson átti ágæta spretti í fyrri hálfleik í kvöld, en eins og sjá má á myndinni voru skilyrðin alls ekki góð vegna ausandi rigningar AFP

Íslenska landsliðið tapaði 1-0 fyrir því spænska í leik liðanna á Mallorca í undankeppni EM í kvöld. Sigur Spánverja var fyllilega verðskuldaður og hefði orðið miklu stærri ef ekki hefði verið fyrir stórleik Árna Gauts Arasonar í íslenska markinu. Það var miðjumaðurinn Andres Iniesta sem skoraði sigurmark spænska liðsins þegar tíu mínútur voru til leiksloka.

Íslenska liðið spilaði stífan og agaðan varnarleik í kvöld eins og reikna mátti með. Spánverjar fengu nokkur góð færi í fyrri hálfleiknum en höfðu ekki heppnina með sér. Ólafur Örn Bjarnason átti líklega hættulegasta færi íslenska liðsins rétt fyrir hlé, en hann skaut framhjá eftir að boltinn barst til hans eftir hornspyrnu.

Segja má að aðeins eitt lið hafi verið á vellinum í síðari hálfleiknum, en þar var það Árni Gautur sem var allt í öllu. Ein af bestu tilþrifum hans voru einmitt þegar hann varði vel frá téðum Ólafi Erni sem misreiknaði sig í varnarleiknum. Spánverjarnir gerðu sig hvað eftir annað líklega til að skora, en Árni varði eins og berserkur og átti stórleik í kvöld. Hann átti þó ekki svar við skoti Iniesta á 80. mínútu og niðurstaðan því enn eitt tapið hjá Íslenska liðinu - sem hefur ekki séð til sólar síðan það vann frækinn sigur á toppliði Norður-Íra í Belfast forðum.

Ekki er hægt að segja að niðurstaðan í kvöld hafi verið annað en sanngjörn, því spænska liðið skoraði mark sem dæmt var af og átti klárlega að fá vítaspyrnu. Dómarinn var því íslenska liðinu nokkuð hliðhollur í kvöld.

Norður-Írar eru á toppi riðilsins með 13 stig úr 6 leikjum, Svíar hafa 12 stig úr 5 leikjum, Spánverjar 9 stig úr 5 leikjum, Danir 7 stig úr 4 leikjum, og Lettar, Lichtenstein og Ísland með 3 stig hvert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×