Fótbolti

Aragones gagnrýnir Alonso og Iniesta

Iniesta fékk að kenna á því frá landsliðsþjálfaranum
Iniesta fékk að kenna á því frá landsliðsþjálfaranum NordicPhotos/GettyImages

Það er um fátt rætt annað á Spáni en það ósætti sem virðist ríkja milli nokkurra leikmanna spænska liðsins og þjálfarans, Luis Aragones. Hann lét ýmislegt misjafnt falla um leikmenn sína á blaðamannfundi eftir leik Spánverja gegn Dönum um helgina.

Hann sagði meðal annars að miðjumennirnir Iniesta og Xabi Alonso hafi valdið sér sérstökum vonbrigðum í síðari hálfleik.

Leikmenn hafa svarað þessu til með því að segja að hann megi láta allt flakka í búningsklefanum en það sé óviðeigandi að gagnrýna menn svo harkalega í fjölmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×