Fótbolti

Spánverjar ætla að bræða Íslendinga

Íslendingar mæta Spánverjum í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu á morgun. Þrátt fyrir litla möguleika á hagstæðum úrslitum fyrir Ísland, eru veikir hlekkir í spænska liðinu.

Spánverjar lögðu Dani á laugardaginn en þrátt fyrir sigurinn er landsliðsþjálfari Spánverja, Luis Aragones langt frá því að vera sáttur við leik sinna manna og forðast bjartsýni fyrir leikinn á morgun.

Aragones segir leikmenn sína hafa orðið taugaveiklaða þegar Danir minnkuðu muninn, manni færri. Hann gerði sér lítið fyrir og nafngreindi í blaðaviðtali, tvo af leikmönnum sínum sem honum fannst

ekki standa sig. Benti hann sérstaklega á Andres Iniesta leikmann Barcelona og Xabi Alonso hjá Liverpool fyrir að missa boltann óvenju oft til mótherjanna.

En það verður að segjast eins og er að líkurnar á hagstæðum úrslitum gegn Spánverjum eru ekki miklar eins og stuðlarnir hjá evrópskum veðbönkum vitna um. Veðbankinn bet365, nítjánfaldar peninginn sem lagður er undir á íslenska sigur, stuðullinn á jafntefli er 7.50 en spænskur sigur hækkar fjárhæðina ekki nema um tólf hundruðustu. Hjá Betson er stuðullinn 25 á íslenskan sigur, Eurobet sautjánfaldar upphæðina sem og William Hill veðbankinn og á Lengjunni er stuðulinn rétt undir 10.

En dagblöðin á Spáni hafa áhyggjur af landsliðinu sínu eftir frammistöðuna gegn Dönum og ekkert dagblað heldur því beinlínis fram að auðveldur sigur vinnist gegn Íslendingum. Í El Mundo Deportivo segir að Spánverjar hafi litið hræðilega út gegn Dönum sem hafi séð í gegnum alla veikleika heimamanna. Sport segir að leikurinn hafi skilið eftir vont eftirbragð og allt of marga hluti þurfi að laga. Þá viðurkenndi frmaherjinn David Villa í viðtali við Marca að svo virtist sem liðið þjáðist af sviðsskrekk.

Það eru aðeins yfirvöld á Mæjorka, þar sem leikurinn fer fram, sem sýna sigurvissu. Í auglýsingaherferð sem þar stendur yfir til að lokka að ferðalanga í tengslum við leikinn, segir í slagorði, "Við ætlum að bræða Íslendingana í hitanum."

Leikurinn hefst klukkan átta annað kvöld og verður í beinni útsendingu á Sýn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×