Fótbolti

Ólga í herbúðum Spánverja

Luis Aragones
Luis Aragones Mynd/Valli

Luis Aragones, landsliðsþjálfari Spánverja, hefur beðið fréttamenn að hætta búa til sögur af óeiningu í herbúðum liðsins fyrir leikinn gegn Íslendingum í undankeppni EM annað kvöld. Spænsku blöðin sögðu að ólga væri í herbúðum liðsins og gagnrýndi það harðlega eftir ósannfærandi sigur á Dönum um helgina, þar sem spænskir voru manni fleiri meira en hálfan leikinn.

"Gagnrýnið mig eins og þið viljið - en ekki prenta lygar," sagði Aragones á blaðamannafundi og sagði engin vandræði í leikmannahópnum. "Dyrnar eru alltaf opnar hjá mér ef leikmenn mínir eru með vandamál og enginn þeirra hefur enn leitað til mín.

Spánverjar verða væntanlega með svipað lið gegn Íslendingum annað kvöld og það sem lagði Dani, en varnarmennirnir Carles Puyol og Sergio Ramos verða þó leikfærir á ný eftir bann og koma væntanlega báðir inn í hópinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×