Fótbolti

Farangur landsliðsins skilaði sér ekki

Á annan tug ferðataska í eigu KSÍ og leikmanna íslenska landsliðsins í fótbolta skiluðu sér ekki til Mallorca, þar sem liðið mætir því spænska í undankeppni EM á miðvikudag. Talið er að klúður á flugvellinum í Keflavík hafi orðið til þess að töskurnar fóru til Kanaríeyja í staðinn. Spænskir fjölmiðlar greina frá þessu í morgun.

Að því er El Mundo Deportivo, stærsta dagblað Katalóníu, heldur fram og hefur staðfest frá talsmanni íslenska liðsins voru það alls 19 töskur sem skiluðu sér ekki, og á meðal þess sem var í þessum töskum var búnaður til að nota við æfingar, s.s. keilur, vesti, vatnsbrúsar og fleira í þeim dúr.

Íslenska liðið lenti á Mallorca í gær og er fyrirhugað að liðið æfi á svæðinu í dag. Líklegt er að töskurnar skili sér í herbúðir landsliðsins síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×