Fótbolti

Góður sigur Þjóðverja á Tékkum

Kevin Kuranyi átti mjög góðan leik fyrir Þjóðverja í kvöld. Hér fagnar hann fyrra marki sínu.
Kevin Kuranyi átti mjög góðan leik fyrir Þjóðverja í kvöld. Hér fagnar hann fyrra marki sínu. MYND/Getty

Þjóðverjar unnu góðan útisigur á Tékkum í uppgjöri efstu liða D-riðils undankeppni EM í fótbolta í kvöld. Kevin Kuranyi skoraði bæði mörk Þjóðverja. Þá vann Króatía 2-1 sigur á Makedóníu eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik og tryggði stöðu sína á toppi E-riðils.

Kuranyi skoraði mörk sín á 42. og 62. mínútu en Milan Baros náði að minnka muninn á 77. mínútu. Lengra komust heimamenn hins vegar ekki, en Jens Lehmann í marki þýska liðsins varði mjög vel á lokakafla leiksins. Þjóðverjar eru með 13 stig á toppi D-riðilsins en Tékkar eru í öðru sæti með 10 stig.

Dario Srna og Da Eduardo skoruðu tvö mörk fyrir Króatíu í síðari hálfleik og tryggði liðinu 2-1 sigur á Makedóníu í Króatíu. Með sigrinum náðu Króatar fimm stiga forystu á Englendinga í riðlinum, en fyrirfram var búist við einvígi þessara liða um toppsætið. Englendingar eru hins vegar í þriðja sæti, heilum þremur stigum á eftir Rússum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×