Fótbolti

Englendingar náðu aðeins jafntefli í Ísrael

Wayne Rooney átti ýmislegt vantalað við Tal Ben Haim, varnarmann Ísraela, í leik þjóðanna í kvöld.
Wayne Rooney átti ýmislegt vantalað við Tal Ben Haim, varnarmann Ísraela, í leik þjóðanna í kvöld. MYND/Getty

England og Ísrael gerðu markalaust jafntefli í undankeppni EM í knattspyrnu í kvöld þegar liðin áttust við í Ísrael. Úrslitin eru mikil vonbrigði fyrir Englendinga og er liðið nú í þriðja sæti E-riðilsins með átta stig. Á sama tíma unnu Rússar lið Eista og komust þannig í efsta sæti riðilsins.

Leikurinn í Ísrael í kvöld var lítið fyrir augað og var það sama ládeyðan og áður sem einkenndi leik enska liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×