Heitir á stjórnarandstöðu um samstarf í auðlindamáli 14. mars 2007 22:08 MYND/GVA
Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, hét á stjórnarandstöðuna um samstarf í auðlindamálinu og sagði erindi Framsóknarflokksins aldrei hafa verið meira en nú í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld. Hann sakaði stjórnandstöðuna um neikvæð viðhorf og vanmat á nútímalegum aðstæðum Íslendinga og um úrelt afturhaldssjónarmið. Sagði hann tekjuskiptingu jafnari hér en í flestum öðrum Evrópuríkjum og benti á að samið hefði verið um aukinn stuðning við öryrkja og aldraða. Mikið átak hefði verið unnið í þeim málum. Þá hefði heimamönnum á landsbyggðinn verið falið að forsjá með vaxtasamningum en þó bæri að taka betur á atvinnumálum á landsbyggðinni, sérstaklega á Vestjörðum. Benti hann á góð verk í umhverfismálum eins og stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Hann sagði enn fremur að brátt lyki mestu framkvæmdum Íslandssögunnar í tengslum við Kárahnjúkavirkjun og þá færu þær að færa þjóðinni arð og betri lífskjör. Margt hefði verið sagt um framkvæmdirnar að lítilli hófsemi en það myndi hverfa þegar menn sæju afrakstur þeirra. Þá gerði hann þjóðarsátt um verndun og nýtingu auðlinda að umtalsefni og sagði að auðlindaákvæðið sem færi inni stjórnarskrá tryggði að náttúruauðlindir landsins yrðu um aldur og ævi þjóðareign. Stjórnarandstæðingar hefðu óskað eftir einföldu ákvæði um þetta og því héti hann á stjórnarandstöðuna um samstarf í málinu. Þá sagði hann framsóknarmenn áfram vilja stefna að þroskuðu þekkingarsamfélagi fyrir allt landið og að Íslendingar hefðu áfram lífskjör og menntun sem væri með því besta í heimi. Andstæðingar hefðu reynt að gera lítið úr þessari stefnu flokksins en hefði ekki orðið kápan úr því klæðinu. Mikilvægt væri að glata ekki því sem áunnist hefði á síðustu árum og því bæri að varast fagurgala stjórnarandstöðunnar. Erindi Framsóknarflokksins hefði aldrei verið eins brýnt og nú og Íslendingar þyrftu að njóta ábyrgðar og festu sem framsóknarmenn hefðu fram að bjóða. Þá Þyrfti að tryggja sérstaklega langvarandi jafnvægi og varanlegan stöðugleika í efnahagsmálum. Hét Jón á alla landsmenn að hugsa sig vel um fyrir kosningarnar og velja þá sem traustir væru. Lífskjör langflestra landsmanna hefðu aldrei verið betri og útrás aldrei meiri. Atvinnuöryggi væri mun meira en í nágrannalöndum og kaupmáttaraukning mikil.
Mest lesið Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna Innlent Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Erlent „Við erum bara happí og heimilislaus“ Innlent Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Innlent Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Innlent Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli Innlent Fleiri fréttir Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Seinka opnun Vesturbæjarlaugar lítillega Óvenjulegt fyrir göngufólk og sannkallað Spánarveður Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Lokametrarnir á Alþingi og veðurblíða um allt land Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli „Við erum bara happí og heimilislaus“ Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Tenerife-veður víða á landinu Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi að nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Sjá meira