Erlent

Vilja minnka útblástur

AP

Utanríkisráðherrar 27 ríkja Evrópusambandsins funda nú í Brussel um leiðir til að minnka útblástur koltvísýrings í andrúmsloftið. Ekki hefur enn verið komist að samkomulagi en það strandar á skiptum skoðunum um smáatriði. Markmið fundarins er að ráðherrarnir samþykki metnaðarfulla áætlun sem er ætlað að draga verulega úr útblæstri. Ekki er þó búist við því að samkomulag náist um eitt helsta mál fundarins, hvort eigi að setja bindandi ákvæði um nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Frank-Walter Steinmeier utanríkisráðherra Þýskalands sagðist þó bjartsýnn um að það þokist í samkomulagsátt á fundinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×