Erlent

Árás myndi flýta kjarnavopnavæðingu Íran

AP

Árás á Íran gæti haft í för með sér að landið komi sér upp kjarnorkuvopnum hraðar en annars. Þetta er fullyrt í nýrri skýrslu frá rannsóknarhópi við háskólann í Oxford á Englandi sem vopnasérfræðingurinn Frank Barnaby leiðir.

Íranar hafa staðfastlega neitað því að þeir ætli að framleiða kjarnorkuvopn heldur segjast nýta kjarnorku í friðsamlegum tilgangi.

Í skýrslu Barnaby segir að ef ráðist er á Írani sé líklegra en annars að þeir beiti öllum meðulum til að smíða kjarnavopn, sama þó þau séu vanþróuð og lítilvirk, til þess eins að geta ógnað með þeim. Hann segir hins vegar að ef Íranir eru látnir í friði séu minnst fimm ár þar til þeir gætu átt kjarnavopn. Auk þessa benti Barnaby á að ef ráðist er á Íran muni þjóðin þjappa sér saman sem aldrei fyrr og láta af gagnrýni við eigin stjórnvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×