Erlent

Kosið í Eistlandi í dag

Kjörstaðir í Eistlandi voru opnaðir í morgun en þarlendir kjósa sér þing í dag. Búist er við að mið- og hægriflokkarnir haldi velli og myndi aftur stjórn. Eistland er eitt fátækasta land Evrópusambandsins en um leið það tæknivæddasta. Fjölmargir kjósendur notuðu veftækni og greiddu atkvæði í gegnum netið með sérstökum rafrænum kjörseðlum og hefur það hvergi verið gert í kosningum fyrr. Lokað var fyrir þessa nýju kosningaleið á fimmtudaginn og þá höfðu þrjátíu þúsund Eistar nýtt sér hana af um níu hundruð þúsund sem eru á kjörskrá. Þingkosningarnar nú eru þær elleftu frá því landið fékk sjálfstæði árið 1991.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×