Áframhaldandi lækkun á hlutabréfum 28. febrúar 2007 12:08
Hlutabréf héldu áfram að lækka í Asíu og Evrópu í morgun annan daginn í röð í kjölfar mikillar lækkunar á kínverska hlutabréfamarkaðnum í fyrradag. Hlutabréfavísitölur á Norðurlöndunum lækkuðu töluvert og áhrif þessarar lækkunar mátti merkja hér á Íslandi annan daginn í röð. Kínverski hlutabréfamarkaðurinn var sá eini í Asíu sem náði sér á strik í dag eftir tæplega níu prósenta lækkun í fyrradag en sú lækkun var sú mesta þar í landi í áratug. Aðrir markaðir um alla Asíu lækkuðu allt frá tæpum þremur prósentum í Japan niður í níu prósent á Filippseyjum. Áframhald varð á lækkunum á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum og Dow Jones vísitalan lækkaði um 3,3 prósent. Hlutabréfamarkaðir á Norðurlöndunum lækkuðu og hér á Íslandi féllu hlutabréf annan daginn í röð. Vísitalan hefur lækkað um 5 prósent á tveimur dögum og íslenska krónan hefur veikst um 2,3 prósent á tveim dögum sem rekja má til þessarar alþjóðlegu lækkunar. Þessi lækkun annan daginn í röð er talin eiga upptök sín í orðrómi um ofmat hlutabréfa í Kína og íhlutun kínverskra stjórnvalda um að aftra því að áhættufyrirtæki fengju bankalán. Lækkunina á bandarískum mörkuðum má meðal annars rekja til ummæla Alans Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóra Bandaríkjanna, um áhyggjur af niðursveiflu í kínverskum og bandarískum efnahagi. Þau orð urðu til mestu lækkunar á Wall Street síðan 11. september 2001. Sérfræðingar hér á landi og erlendis tala um leiðréttingu þar sem talsverðar hækkanir hafi verið á mörkuðum víða um heim og bjartsýni hafi verið ríkjandi. Svo koma efasemdir um innistöðu þessa hækkanna og þá leiðrétti markaðurinn sig. Til að mynda hafi kínverski markaðurinn hækkað um 130 prósent á einu ári. Sérfræðingar spá því reyndar að kínverski hlutabréfamarkaðurinn eigi eftir að jafna sig og forsætisráðherra Ástralíu, John Howard, reyndi að draga úr áhyggjum manna með því að minna á að miðað við mikinn og hraðan efnahagsvöxt í Kína hefði mátt búast við sveiflu af þessu tagi.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira