Tveggja barna móðir sem glímir við afleiðingar heilablóðfalls fær ekki íbúð í Mosfellsbæ 23. febrúar 2007 19:00
Allt stefnir í að tveggja barna móðir, sem fékk heilablóðfall fyrir þremur árum, verði á götunni þann 1. mars næstkomandi, en hún er úrkula vonar um lausnir í húsnæðismálum sínum. Hún og foreldrar hennar hafa ítrekað beðið bæjarstjórn Mosfellsbæjar um úrræði en fengið þau svör að enga hjálp sé að fá þar í bæ Forsaga málsins er sú að í apríl 2004 fékk Steinunn Jakobsdóttir heilablóðfall. Hún var þá 27 ára nýfráskilin móðir tveggja barna og hafði búið í Mosfellsbæ í átta ár þar sem börn hennar hafa alla tíð gengið í skóla. Fyrrverandi maður hennar tók börnin alfarið að sér í kjölfar veikinda Steinunnar. Eftir áfallið bjó hún í ár á Grensási þar sem hún var við endurhæfingu en að henni lokinni flutti hún til foreldra sinna. Húsnæði foreldra hennar hentar ekki fyrir þrjá fullorðna einstaklinga og börn aðra hverja helgi. Steinunn fékk því úthlutaða endurhæfingaríbúð Sjálfsbjargar þar sem einstaklingur getur dvalist í eitt ár. Nú er árið á enda og fáar lausnir í sjónmáli. Foreldrar Steinunnar hafa stutt við hana af öllum mætti og jafnvel boðið bæjaryfirvöldum að kaupa íbúð ef bærinn gæti komið til móts við þau með sérstökum húsnæðisbótum. Svörin sem foreldrum var gefin voru þau að engar reglur kveði á um slíkt og að bæjarfélagið hafi selt svo margar félagslegar íbúðir að undanförnu, að ekki sé hægt að veita Steinunni slíka íbúð. Foreldrar hennar hafa því spurt sig hvers vegna ekki sé hægt að fjölga þeim þegar á reynir. Og Steinunn er ekki bjartsýn á hvað taki við að viku liðinni þegar hún þarf að flytja úr íbúð Sjálfsbjargar; " Ég myndi yppta báðum öxlum ef ég gæti, en við mér blasir bara gatan og óvissan"
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira