Steingrímur: „Þjóðin vill breytingar“ 23. febrúar 2007 18:00
Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna sagði í ræðu sinni við setningu landsfundar flokksins síðdegis að meginverkefni komandi kosninga væri stjórnarandstöðunnar að fella ríkisstjórnina. „Þjóðin vill breytingar", sagði Steingrímur. „Og það er gríðarlega mikilvægt að allir átti sig á að forsenda þeirra breytinga er ein og aðeins ein: það er að fella ríkisstjórnina! Það verða engar breytingar í íslenskum stjórnmálum nema ríkisstjórnin falli. Það er algerlega á hreinu, eins víst og að tvisvar tveir eru fjórir, jafn öruggt og að vatnið leitar niður í móti, að hangi stjórnarflokkarnir á meirihluta, þá halda þeir áfram. Þeir eru samgrónir eftir 12 ára sambúð", sagði Steingrímur. Þá vildi hann meina að samstarf stjórnarandstöðuflokkana hefði verið gott það sem af væri kosningaveturs, að annað væri tilbúningur andstæðinga þeirra í ríkisstjórn og fjölmiðla þeim hliðhollum. Þá varð honum tíðrætt um góða stöðu Vinstri grænna í skoðanakönnunum. „Við höfum mánuðum saman verið eini flokkurinn sem hefur mælst stöðugt með umtalsvert, reyndar iðulega tvöfalt og langleiðina í þrefalt það fylgi sem við fengum í síðustu kosningum. Aðrir flokkar eru samkvæmt öllum þessum mælingum ýmist að tapa fylgi - sumir verulega eins og Framsókn - eða u.þ.b. halda sjó. Þetta er það stóra og það sögulega sem getur verið í vændum og við, góðir félagar, við skulum ekki unna okkur hvíldar, við skulum leggja nótt við dag og gera allt sem í okkar valdi stendur til að láta þennan draum rætast". Þá sagði hann það ekki vera vegna ráðherrastóla eða titla eða vegna þeirrar spillingar sem hann vildi meina að viðgengist hjá stjórnarflokkunum heldur vegna þess að þörf væri fyrir grundvallar stefnubreytingu. „Rauða spjaldið á helmingskiptaflokkana sem úthlutuðu sér einum banka hvor, útaf með þá", sagði Steingrímur um spillingu stjórnarflokkanna. Fundurinn hófst sem sagt á Grand hótel í Reykjavík fyrr í dag og stendur yfir helgina. Þetta er fjölmennasti landsfundur Vinstri grænna til þessa. MYND/OddurMYND/OddurMYND/Oddur
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira