Innlent

Myndatökur og gestabækur bannaðar

Jón Gerald Sullenberger með lögmanni sínum Brynjar Níelssyni.
Jón Gerald Sullenberger með lögmanni sínum Brynjar Níelssyni. MYND/Gunnar

Myndatökur og gestabækur voru bannaðar um borð í Viking bátunum samkvæmt framburði Jóns Geralds Sullenberger í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ýmsir nafngreindir menn úr viðskiptalífinu komu í bátana og keyptu Baugsmenn meðal annars golfsett fyrir einn þeirra.

Yfirheyrslur héldu áfram í morgun en þar var spurt um 18. ákærulið endurákærunnar, sem snýr að meintum fjárdrætti Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar frá Baugi í þeim tilgangi að fjármagna eignarhlutdeild í skemmtibátnum Thee Viking.

Jón Gerald heldur því fram að báturinn hafi verið sameiginleg eign hans og þeirra Jóns Ásgeirs og Jóhannesar Jónssonar. Hann hafi fengið greiðslur frá Baugi á þessum tíma sem hafi verið upp í bátinn. Bæði Tryggvi og Jón Ásgeir hafa hins vegar haldið því fram að greiðslurnar hafi verið í tengslum við Vöruhúsið sem Jón Gerald átti en fjárfestingafélagið Gaumur, sem er að hluta til í eigu Jóns Ásgeirs, hafi lánað honum fyrir bátnum

Á tíunda áratugnum voru keyptir þrír bátar. Fyrst var Viking I keyptur. Næst Viking II og síðan þriðji báturinn Thee Viking. Sá bátur var miklu stærri en hinir og mun þægilegri að sögn Jóns Geralds. Bátarnir voru við höfn í Miami í Flórída í Bandaríkjunum

Jón Gerald sagði mikil leynd hafi verið yfir eignarhaldi þeirra Bónusfeðga í bátunum. Þeir hafi ekki viljað berast á þar sem þeir áttu og ráku lágvöruverslun. Gestum hafi átt að vera ljóst að þeir áttu bátinn en þangað buðu þeir ýmsum mönnum úr viðskiptalífinu eins og Kaupþingsmönnunum Sigurði Einarssyni og Hreiðari Má Sigurðssyni og Ara Edwald. Fleiri nafngreindir menn hafa áður verið nefndir í þessu samhengi svo sem Bjarni Ármannsson sem er forstjóri Glitnis. Í ferð hans vestur um haf keypti Tryggvi meðal annars tvö golfsett út á kort Baugs, annað fyrir Bjarna og hitt fyrir sig. Fyrir dómi sagði Tryggvi að hann hefði síðar endurgreitt sitt sett til Baugs.

Í bátunum mátti ekki taka myndir og ekki mátti hafa gestabók um borð. Allt var þetta gert að sögn Jóns Geralds til að tryggja það að ekki fréttist af ferðunum þangað. Ekki eru því til myndir af partýum sem haldin voru í bátunum. Tónlistina hefur að minnsta kosti ekki vantað þar sem Tryggvi hefur sagt við yfirheyrslur að hluti af því sem hann er ákærður fyrir í nítjánda lið ákærunnar sé tilkomið vegna kaupa á geisladiskum í bátana.

Verjendur Baugsmanna vilja að 18. ákæruliður verði dreginn til baka. Í bókun sem þeir lögðu fram í dag kemur fram að framburður Jóns Geralds stangist á við orðalag ákærunnar þess efnis að Jón Gerald hafi aldrei minnst á að Gaumur ætti að eignast bátinn. Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari, segir ákæruna ekki bara byggða á framburði Jóns Geralds.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×