Innlent

Fundað um framtíð ratsjárvarnarkerfis

Ratstjárstöðin á Stokksnesi.
Ratstjárstöðin á Stokksnesi. MYND/Hornafjörður

Fyrsti fundur Íslands og Bandaríkjanna um framtíð ratsjár- og loftvarnarkerfisins á Íslandi var haldinn í Brussel fyrr í dag. Að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu var rætt um fyrirkomulag og fjármögnun á kerfinu eins og kveðið er á um í samkomulagi Íslands og Bandaríkjanna sem undirritað var í október á síðasta ári. Fundurinn var sagður jákvæður og eru fljótlega fyrirhugaðar áframhaldandi viðræður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×