Innlent

Kærum KB banka vísað frá siðanefnd í Danmörku

Siðanefnd danskra fjölmiðla hefur vísað á bug kærum KB banka og Sigurðar Einarssonar, stjórnarformanns hans, á hendur danska Extrablaðinu vegna skrifa blaðsins um starfsemi bankans síðastliðið haust.

Öllum atriðum kærunnar var vísað frá eftir að nefndarmenn höfðu farið yfir gögn, sem lágu til grundvallar skrifanna, að sögn Extrablaðsins. KB banki og Sigurður hafa líka höfðað mál gegn Extrablaðinu fyrir breskum dómstól vegna sama máls. Ástæða þess er að umfjöllun blaðsins um bankann birtist í enskri þýðingu á heimasíðu blaðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×